Eignaland logo
Skráð 13. júní 2026

Þórufell 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
79.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
687.970 kr./m2
Fasteignamat
51.900.000 kr.
Brunabótamat
42.250.000 kr.
Mynd af Sigurður Fannar Guðmundsson
Sigurður Fannar Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali. Sala og ráðgjöf.
Byggt 1971
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2052022
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Númer íbúðar
3
Raflagnir
sa
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Eignaland fasteignasala og Sigurður Fannar löggiltur fasteignasali kynnir fallega og bjarta 3ja herb íbúð á  efstu hæð í Þórufelli 8. Um er að ræða eign sem er skráð samkv FMR 79,8 m2 og þar af er geymsla 6,5 m2. Eignin er með rúmgóðum svölum til vesturs og eru því sólríkar frá hádegi fram á kvöld og með frábæru útsýni. Sérmerkt bílastæði.

ATH - EKKI HÆGT AÐ SKOÐA FYRR EN EFTIR 17.júní.


Nánari lýsing:
Íbúðin skiptist á eftirfarandi hátt.
Forstofuhol með flísalögðu gólfi og nýlegum fataskáp með rennihurðum ásamt hvítum skóskáp.
Stofa með útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa til vesturs og eru því sólríkar frá hádegi fram á kvöld og með frábæru útsýni og tréflísum. Harðparket er á gólfi og stofan rúmar einnig borðstofu.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu með efri og neðri skápum,  keramikhelluborð með viftu yfir , gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu, rúmgóður borðkrókur og flísar á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa og innréttingu með nýlegum guartz steini frá S.Helgasyni. Tengi fyrir þvottavél, handklæðaofn.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi og máluðum fataskáp.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi.
Í sameign er sér geymsla sem fylgir eigninni með hillum , einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús.

Nýjir gluggar í eldhúsi, barnaherbergi og hjónaherbergi. Nýleg gólfefni í allri eigninni, nýlegur ofn í stofu.

Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is 
© Copyright 2026 - Eignaland
Knúið af
Fasteignaleitin