Eftirfarandi gjaldskrá er leiðbeinandi um þjónustu og gildir nema að um annað hafi verið samið.
Þóknunarfjárhæðir og gjaldskrá er kynnt með og án virðisaukaskatts.
Söluþóknun Íbúðar- og atvinnuhúsnæðis:
Einkasala er 1,7% af söluverði auk vsk.
Almennsala er 1,95% af söluverði auk vsk.
Söluþóknun annara eigna:
Sölulaun sumarhúsa er 2,5% af söluverði auk vsk.
Sölulaun jarða og byggingaverkefna er 2% af söluverði auk vsk.
Lágmarks söluþóknun allra eigna er kr. 500.000 auk vsk.
Þóknun við sölu á fyrirtækjum og/eða rekstrareiningum 5% af heildarvirði hins selda auk vsk.
Þóknun vegna sameiningu fyrirtækja 5% af heildarvirði auk vsk.
Þóknun vegna öflun hlutafjár/fjárfesta 10% af öfluðu hlutafé auk vsk.
Lágmarksþóknun vegna sölu fyrirtækis með skjalagerð er kr. 1.450.000.- auk vsk.
Verðmat og fjárfestakynning, leitið tilboða.
Vinna við verkefni eftir að fyrirvaralaus kaupsamningur hefur verið undirritaður er innheimtur samkvæmt útseldu tímagjaldi.
Þóknun fyrir að annast milligöngu leigusamnings:
Þóknun vegna leigusamninga sem gilda í 5 ár eða minna nemur mánaðarleigu auk vsk.
Þóknun vegna leigusamninga sem gilda í meira en 5 ár er sem nemur leigu tveggja mánaða auk vsk.
Umsýslukostnaður kaupenda er 79.900.- m. vsk.
Gagnaöflunargjald seljanda er 79.900.- m. vsk.
Skjalafrágangur vegna kaupsamnings og/eða afsal lágmark kr 250.000 auk vsk. ( Getur verð hærra fer allt eftir umfangi samningsins)
Skriflegt verðmat á íbúðarhúsnæði er að lágmarki 39.900 m.vsk.
Skriflegt verðmat á atvinnuhúsnæði er að lágmarki 89.900.- m.vsk.
Verðmöt á annarskonar eignum svo sem jörðum og sumarbústöðum er gefið tilboð í fyrir hvert verkefni.
Við makaskipti er söluþóknun 1% af söluverði auk ask.
Sala bifreiða sem settar eru upp í kaupverð fasteigna er 4 % af söluverði auk virðisauka, en þó aldrei lægri en kr. 79.900 m.vsk.
Tímagjald starfsmanna er 30.000.- auk vsk.
Skriflegur samningur er gerður við viðskiptavini um þjónustu sem veitt er, í honum skal verkefni sem unnið er skilgreint og kostnaður tilgreindur, auk annarra atriða sem máli skipta. Ef ekki er gerður skriflegur samningur gildir þessi verðskrá.
Ef eitthvað er óljóst og þarfnast nánari skýringa, vinsamlegast hafið sambandi við Eignaland til frekari skýringa.
Virðisaukaskattur er nú 24%, leggst ofan á alla þjónustu nema annað sé tekið fram.
Verðskrá í gildi frá 01.01.2025
