Eignaland logo
Opið hús:22. nóv. kl 14:00-16:00
Skráð 17. nóv. 2026

Brautarholt 19

EinbýlishúsVesturland/Ólafsvík-355
201.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
41.700.000 kr.
Fermetraverð
207.051 kr./m2
Fasteignamat
50.700.000 kr.
Brunabótamat
105.400.000 kr.
Mynd af Böðvar Reynisson
Böðvar Reynisson
Löggiltur fasteignasali. Sala og ráðgjöf.
Byggt 1981
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2103471
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Þarfnast viðhalds
Þak
Endurnýjað 2019
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti og ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
**** VEGNA SÉRSTAKRA AÐSTÆÐNA BÝÐST ÞETTA FÍNA EINBÝLISHÚS LANGT UNDIR MARKAÐSVIRÐI ****

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali í síma 7668484, tölvupóstur bodvar@eignaland.is

Gott 5 herbergja steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Ólafsvík. Húsið er byggt árið 1981. Talsvert hefur verið unnið að endurbótum að húsinu undanfarin misseri, en ýmislegt er þó óklárað og/eða þarfnast endurnýjunar. Búið er að endurnýja þak, leggja hita í gólf á neðri hæð, endurnýja skólp að hluta og skipta um einn glugga í stofunni, sjá nánar "ástand og viðhald skv. eiganda" hér að neðan. Öll helsta þjónusta er í göngufæri, s.s. matvöruverslun, leikskóli, grunnskóli, líkamsrækt, sundlaug og strætó.


Upplýsingar úr FMR: Brautarholt 19, 355 Ólafsvík, 201,4m², eign merkt 01-01, fastanúmer 210-3471 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Skipting eignar: 
Efri hæð:
 77,9m² - Forstofa, gestasnyrting, hol, stofa, eldhús, búr og bílskúr.
Neðri hæð: 94m² - 4x svefnherbergi, gangur, baðherbergi, þvottahús og geymsla. 
Bílskúr: 29,5m²

Lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi.
Gestasalerni er við hlið forstofu, flísar á gólfi, vegghengt salerni og rúmgóð innrétting með handlaug og spegli yfir handlaug.
Hol með með flotuðu gólfi. 
Stofan og borðstofan eru rúmgóðar með parketi á gólfi og hurð út á góðan afgirtan sólpall.
Eldhúsið er rúmgott með borðkróki og eldri innréttingu með góðu skápaplássi.
Búr er inn af eldhúsi með flísum á gólfi.

Neðri hæð:

4x svefnherbergi með flotuðum gólfum og gólfhita, hjónaherbergið er með góðu skápaplássi.
Gangur með flotuðum gólfum og gólfhita. 
baðherbergi með flísum á gólfi, baðkari með sturtu, vegghengdu salerni og innréttingu með handlaug og spegli yfir handlaug.
Þvottahús er inn af eldhúsi, með flísum á gólfi og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla með flísum á gólfi er einnig inn af eldhúsi.

Geymsluloft er yfir húsinu.
Góður sólpallur.
Gott útsýni. 

Ástand og viðhald skv. eiganda:
Járn á þaki og pappi skift um sumarið 2019 á eftir að klára rennur og þak kantinn
Skift var um stóra gluggann í stofunni sem liggur í suðurátt og farið í sprunguviðgerðir á austurgafli hússins

Skipt um skólplögn frá klósetti á neðri hæð og út fyrir grunn og hiti settur í gólf á neðri hæð í gangi og öllum svefnherbergjum. Einnig liggja tvær lagnir frá hitakistunni tilbúnar til að fara í gólfið inná baðherberginu, einnig ekki var klárað að steypa í gólfið inná baðherberginu þar sem það stóð til að breyta sturtunni og leggja þá nýja lögn frá því niðurfalli og tengja inná þá lögn.

Það á eftir að skipta um flest alla glugga í húsinu sem eru komnir á tíma og a.m.k. tvær útihurðir (hurðina út á pallinn á efri hæð og hurðina út í garð á neðri hæð)

Það á eftir að ganga frá götum þar sem ofnar voru í herbergjum á neðri hæð 

Eldhús innréttingin er orðin lúin.  
 
© Copyright 2026 - Eignaland
Knúið af
Fasteignaleitin