Eignaland logo
Skráð 30. maí 2026

Edenmörk 5

FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
80 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
723.750 kr./m2
Fasteignamat
57.850.000 kr.
Brunabótamat
54.700.000 kr.
Mynd af Böðvar Reynisson
Böðvar Reynisson
Löggiltur fasteignasali. Sala og ráðgjöf.
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2514051
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýlegt
Raflagnir
Nýlegt
Frárennslislagnir
Nýlegt
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Rúmgóðar/útsýni
Lóð
13,5
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Eignaland og Böðvar Reynisson löggiltur fasteignasali kynna Edinmörk 5. Björt og falleg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu og sérinngangi af svölum. Eignin er vel staðsett miðsvæðis í Hveragerði og stutt í alla þjónustu svo sem skóla, verslanir, sundlaug, gönguleiðir, golfvöll, veitingastaði og aðra afreyingu.

**Eignin getur afhenst fljótt**


Bókið skoðun hjá Böðvari Reynissyni löggiltum fasteignasala í síma 766-8484, netfang: Bodvar@eignaland.is

Eignin skiptist í forstofu, alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu, 2x svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu í sameign.

Forstofa er opin inn að alrými, flísar á gólfi og fataskápur.
Svefnherbergi I er á vinstri hönd frá forstofu, rúmgott og bjart með fataskáp og parketi á gólfi.
Alrými sem samanstendur af stofu, eldhúsi og borðstofu er rúmgott og bjart með parketi á gólfi, stórum og góðum útsýnisgluggum og gengt út á rúmgóðar svalir.
Eldhús með rúmgóðri innréttingu með efri og neðri skápum, innbyggðum ofni, helluborði og gufugleypi og tengi fyrir uppþvottavél. Raftenglar eru í vegg á milli innréttinga.
Svefnherbergi II / Hjónaherbergið er rúmgott og bjart með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt með vegghengdu salerni, innréttingu með handlaug og speglaskáp yfir innréttingu. Raftenglar á milli efri og neðri skápa. Tengi er fyrir þvottavél, og sturturýmið er flísalagt í hólf og gólf.
Sérgeymsla er í kjallara 5,6m²
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Upplýsingar úr eignaskiptayfirlýsingu eignarinnar:
Eign 0302
Edenmörk 5, 3.hæð
Fasteignanúmer F2514051
Eignin er íbúð á 3.hæð hússins 03.02
birt stærð 74,4m² auk geymslu í kjallara 00.09 5,6m² ásamt svölum 03.06 12,9m².
Þá tilheyrir eigninni hlutdeild í sameign allra samkvæmt hlutfallstölu hennar í mhl.01.
Birt stærð séreignar er 80,0m², og brúttó rúmmál 303,0m³
Hlutfallstala í mhl.01 og lóð er 13,50%
Hlutfallstala í hitakostnaði er 13,20%

Matshluti 01. Gerð húss og skipting.
Húsið er þriggja hæða fjölbýli og telst til matshluta 01 á lóð. Í húsinu er níu íbúðir, þrjár á hverri hæð. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með málm- og timburklæðningu. Íbuðir 1.hæðar eru með sérafnotareiti eins og merktir eru á teikningum. Lyfta er í húsinu sem tengir kjallar og hæðirnar þrjár. Birt flatarmál hússins er 720,0m² og brúttórúmmál þess er 2.546,7m³ með botnplötu. Sameign allra í matshluta 01 İ sameign allra í kjallarra eru tæknirými (rými 00.10), gangar (rými 00.11), hjóla- og vagnageymsla (rými 00.11), brunastúka (rými 00.12), lyfta (rými 00.13), tæknirými (rými 00.14) og útitröppur (rými 00.15). Á 1.hæð eru lyfta (rými 01.04), og skyggni (rými 0105). Á 2.hæð eru lyfta (rými 02.04), og gangnasvalir/útitröppur (rými 02.08). A 3.hæð eru lyfta (rými 03.04), og gangnasvalir/útitröppur (rými 03.08).
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Edenmörk 1
810 Hveragerði
75.3 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
32
742 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
© Copyright 2026 - Eignaland
Knúið af
Fasteignaleitin