Eignaland logo
Skráð 28. mars 2026

Leifsgata 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
99.9 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
829.830 kr./m2
Fasteignamat
80.350.000 kr.
Brunabótamat
52.900.000 kr.
Mynd af Sigurður Fannar Guðmundsson
Sigurður Fannar Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali. Sala og ráðgjöf.
Byggt 1933
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2008709
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
sagt í lagi
Gluggar / Gler
Ástand ekki vitað
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Eignaland og Sigurður Fannar kynna í einkasölu: Leifsagata 3 sem er 2-3ja herb íbúð sem er vel staðsett í námunda við Landspítalann og skammt frá miðborginni. Frá íbúð er stutt á stofnbrautir og stutt í alla nærþjónustu.
Stærð íbúðar er 99.9fm samkvæmt skráningu HMS, þar af er íbúðin 86.5 og geymsla í kjallara er skráð 13.4fm.


Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is 

Nánari lýsing:
Forstofa/Inngangur.
Gengið er inn íbúð úr sameign.
Gangur: Tengir saman rými hússins. Flísar á gólfi.
Eldhús: Korkflísar á gólfi, ágæt hvítlökkuð eldhúsinnrétting.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með hvítlakkaðri innréttingu.
Svefnherbergi: ágætlega rúmgott herbergi með parket á gólfi og fataskápum.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi. Úr stofu er "rennihurð" yfir í annað sambærilegt rými sem gæti verið önnur stofa eða einnig nýst sem herbergi.
Stofa/herbergi: (sjá að ofan)
Sameign: Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi. Þar eru einnig sérgeymslur fyrir íbúa hússins, ásamt hjóla og vagnageymslu. WC er líka í sameigninni í kjallara.
Geymsla: Rúmgóð sérgeymsla með parketi á gólfi og glugga, mætti nýta sem tómstundaherbergi.

 Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Fannar í síma 897-5930 eða siggifannar@eignaland.is 

Framkvæmdir.
Samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi þá hafa neðangreindar framkvæmdir farið fram á síðustu árum.

Skipt um allt rafmagn í sameign og leitt upp í allar íbúðir 2023.
Skipt um flest ljós í kjallara og ný rafmagnstafla sett upp þar í staðinn fyrir töflur sem var áður að finna í hverri íbúð fyrir sig.
2024 var sett nýtt dyrabjöllukerfi.
2025 var skipt um allar frárennslislagnir í kjallara og út úr húsi en þó ekki út að lóðarmörkum.
Nýlegir gluggar í sameign c.a 2017.
Fyrirhugaðar framkvæmdir.
Múrviðgerðir á húsi.
Málun á gluggum.
Frágangur og málun á kjallara eftir framkvæmdir árið 2025 í kjallara.




 
© Copyright 2026 - Eignaland
Knúið af
Fasteignaleitin