Eignaland logo
Skráð 29. júní 2025

Norðurleið 31

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-801
421 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
144.400.000 kr.
Brunabótamat
209.900.000 kr.
Mynd af Jens Magnús Jakobsson
Jens Magnús Jakobsson
Löggiltur fasteignasali. Sala og ráðgjöf.
Byggt 2009
Þvottahús
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2317475
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stórar svalir
Lóð
100
Upphitun
Gólfhiti og ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Fasteignasali vekur athygli á því að eignin er á byggingastigi 2(fokheld bygging) og því er lokaútekt eftir.
***Norðurleið 31, 800 Selfoss***

Eignaland og Jens Magnús Jakobsson kynna í einkasölu Norðurleið 31, 801 Selfoss. Virkilega reisulegt tveggja hæða einbýli á stórri eignarlóð í Tjarnarbyggð. Eignin er skráð 421 fm skv. fasteignaskrá. Húsið er steinsteypt og byggt 2009. Húsið er einangrað og steinað að utan. Valmaþakið er á húsinu og nær það út fyrir svalirnar sem ná allan hringinn í kringum eigninni. Bílskúrinn er mjög stór eða 128,4 fm og er með tvær bílskúrshurðir. Virkilega falleg eign sem búið er að leggja mikið í.
 
Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
 
Að innan telur eignin:
Efri hæð:

Gengið er upp virkilega veglegar tröppur með hita spiral í. Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðu skápaplássi og gestasalerni með upphengdu salerni og innréttingu. Þaðan er komið inn í stórt alrími. Eldhúsið er stórt með fallegri innréttingu og stórri eyju í miðjunni, borðplötur eru úr steini. Eldhústæki eru öll Mile. Rennihurð er úr eldhúsi út á svalir. Stofan er björt og stór með rennihurð út á svalir. Búið er að stúka stofuna af með sjónvarpsaðstöðu. Svefnherbergin á efri hæðinni eru tvö með útgengni um rennihurð út á svalir. Aðalsvefnherbergið er mjög rúmgott með miklu skápaplássi og seinna er ágætlega rúmgott með góðu skápaplássi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegum innréttingum með steini í borðplötu, stór sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum og baðkar. Þvottahúsið er rúmgott með innréttingu þar sem þvottavél og þurrkari eru í vinnuhæð.

Neðri hæð:
Stíginn niður á neðri hæðina er bjartur og fallegur. Þar er komið niður í alrími með rennihurð út í garð. Tvö svefnherbergi með rennihurð út í garð eru á þessari hæð og eru bæði virkilega rúmgóð með stóru skápaplássi. Búið er að koma fyrir skrifborði með steinborðplötu inn í skápnum. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með sturtu og fallegri innréttingu.
Á öllu húsinu bæði uppi, niðri og á stiganum eru vandaðar 60x60 flísar.

-Kerfisloft með innfeldri lýsingu, hljóðdempun og mikilli lofthæð eru í öllu húsinu.
-Flore gólfhitakerfi er í gólfum.
-Öll blöndunartæki eru af vandaðri gerð.
-GIRA rafmagnsefni er í húsinu.

Bískúr:
Bílskúrinn er mjög stór og rúmgóður eða 128,4 fm. Hann er með tveimur bílskúrshurðum. Innangengt er í bílskúrinn. Innaf bílskúr eru tvær rúmgóðar geymslur.

-Háeinangrandi sólarvarnargler með argon fyllingu er í öllu húsinu.
-Búið er að koma fyrir hita í öllum svölunum ásamt tröppunum upp. Einnig er gert ráð fyrir heitum potti á svölu og búið að koma fyrir lögnum fyrir hann.
-Útigeymsla ásamt sorpgeymslu eru undir tröppunum.

Eignin stendur á 28.496 fm eignarlóð. Tjarnarbyggð er skemmtilegur kostur fyrir fólk sem vill búa í sveitinni og nýta sér alla þjónustu eins og þéttbýlið hefur upp á að bjóða. Árborg og viðkomandi veitur sjá um allan rekstur svæðisins eins og snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur, tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn. 

Einstakt tækifæri til að eignast þessa fallegu eign á frábærum stað. Útsýnið frá eigninni er gríðarlega mikið og kyrrðin mikil.
 
Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Byggt 2009
12.8 m2
Fasteignanúmer
2317475
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
46.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
© Copyright 2026 - Eignaland
Knúið af
Fasteignaleitin