Ég er Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteigna- og skipasali, ásamt því að vera eigandi Eignalands.
Ég hef annast alla almenn sölu á íbúðum og sérbýlum. Einnig hef ég mikla reynslu í sölu jarða, hvort sem sem verið er að tala um jarðir án húsakosts eða í fullum rekstri. Ég er að selja eignir um allt land.
Einnig hef ég komið að sölu og verðmati byggingaverkefna og oft er ég með þannig verkefni til sölu hjá mér þó svo það sé ekki auglýst á opinberum miðlum.
Töluvert hef ég verið að gera verðmöt fyrir fólk, fyrirtæki og fjármálastofnanir á eignum og kemur þá fjölbreytt reynsla mín á sölu allra gerða eigna sér mjög vel.
Ég hef verið að vinna töluvert við sölu og verðmat fyrirtækja og er með góða samstarfsaðila, eins og lögræðing, lögmann og endurskoðanda, sem hægt er að leita til við þá vinna.
Ekki hika við að hafa samband við mig ef þú ert í hugleiðingum á sölu og/eða verðmati á eignum, hvort sem það er fasteign í þéttbýli, dreifbýli, fyritæki eða hvað annað sem er.