Eignaland logo
Skráð 22. sept. 2026

Móstekkur 60

RaðhúsSuðurland/Selfoss-800
136.9 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
620.161 kr./m2
Fasteignamat
88.300.000 kr.
Brunabótamat
76.150.000 kr.
Mynd af Jens Magnús Jakobsson
Jens Magnús Jakobsson
Löggiltur fasteignasali. Sala og ráðgjöf.
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2532451
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Uppreunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Eignaland kynnir fallegt og vel skipulagt fjögurra herbergja endaraðhús að Móstekk 60 á Selfossi. Eignin er skráð 136,9 fm, þar af er 28,3 fm bílskúr. Þrjú svefnherbergi, rúmgott alrými og góður bílskúr. Eignin er staðsett í nýlegu hverfi á Selfossi og í göngufæri við Stekkjaskóla.

Nánari upplýsingar er hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Nánari lýsing:

Forstofa er flísalögð með rúmgóðum fataskáp.
Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og rúmgóðu alrými. Eldhús er með rúmgóðri innréttingu frá Voke-3, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Harðparket er á gólfum.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum og rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er gólfsturta, upphengt salerni og innrétting með speglaskáp. 
Þvottahús er flísalagt með rúmgóðri innréttingu og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílskúr er 28,3 fm og er snyrtilega frágenginn með epoxy á gólfi.

 - Loftadúkur er í loftum íbúðarinnar sem gerir hljóðgæði betri, að bílskúr undanskildum. 
 - Innfeld loftalýsing er á baðherbergi og í stofu sem gefa rímunum fallegt yfirbragð.
 - Húsið er byggt árið 2024 úr timbri og er klætt að utan með báruáli og sléttri álklæðningu. Bárujárn er á þaki.
 - Lóðin er þökulögð, mulningur er í bílaplani og steypt ruslatunnuskýli er við húsið.

Fallegt og vel skipulagt endaraðhús með þremur svefnherbergjum, rúmgóðu alrými og góðum bílskúr. Eign sem búið er að nostra við og koma fyrir skemmtilegri lýsingu sem gerir mikið fyrir eignina.

Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, s.: 893-1984 eða magnus@eignaland.is

 
Byggt 2024
28.3 m2
Fasteignanúmer
2532451
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Númer eignar
08
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
© Copyright 2026 - Eignaland
Knúið af
Fasteignaleitin