Bleikjulækur 35, 800 Selfoss
Eignaland og Jens Magnús Jakobsson kynna í einkasölu þetta sjarmerandi og vel skipulagða einbýlishús á einni hæð á eftirsóttum stað í fjölskylduvænu hverfi á Selfossi. Eignin var byggð árið 2018 og skráð stærð skv. HMS er 181,6 fm, þar af er bílskúr 28,5 fm. Húsið einkennist af hlýlegu og nútímalegu yfirbragði, vönduðu efnisvali, góðri birtu og glæsilegri verönd sem tengir vel saman inni- og útisvæði eignarinnar.
Húsið stendur á rúmgóðri eignarlóð innst í botnlanga og er að mestu frágengin og afgirt. Sambyggður bílskúr er við eignina og rúmgóð og skjólsæl verönd, yfirbyggð að hluta yfir heitan pott og gengið beint þaðan inn í gegnum annað baðherbergi hússins, inn í saunaklefa með fallegri díóðulýsingu. Staðsetningin er róleg og fjölskylduvæn, stutt frá leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu, sundlaug og fjölbreyttri þjónustu í miðbæ Selfoss.
Seljandi er tilbúinn að taka ódýrari eign upp í á höfuðborgarsvæðinu eða á/umhverfis Selfoss.
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:
Björt og vönduð eign með alrými, fjórum svefnherbergjum, glæsilegu baðherbergi og saunu- og sturtuaðstöðu með útgengi á útisvæði.
ForstofaFlísalagt anddyri með góðum fataskápum og inngangi í bílskúr. Rýmið er snyrtilegt og tekur vel á móti gestum.
Gangur og alrýmiBjartur gangur með parketi, innfelldri lýsingu og hlýlegu yfirbragði. Alrýmið er rúmgott og opið, með stofu, borðstofu og eldhúsi í samfelldu flæði og góðri tengingu út á verönd.
StofaBjört stofa með gólfsíðum gluggum sem hleypa inn mikilli dagsbirtu. Kamína setur skemmtilegan svip á rýmið og parket á gólfi undirstrikar hlýlegt yfirbragð.
BorðstofaBorðstofa er í opnu rými við eldhús og stofu og myndar stórt og fjölskylduvænt samverusvæði. Útgengi er á verönd sem eykur tengingu við útisvæði.
EldhúsGlæsilegt eldhús með gráum innréttingum, eyju með steypuáferð og steinborðplötum. Þar eru innbyggður ísskápur, uppþvottavél og vínkælir, bakarofn, samsettur baksturs- og örbylgjuofn, helluborð og Falmec-háfur. Eldhúsið er bjart og vel skipulagt með góðu vinnuplássi.
HjónaherbergiRúmgott herbergi með parketi og góðum fataskáp. Herbergið er bjart og notalegt.
Svefnherbergi IIBjart og snyrtilegt herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi IIIRúmgott herbergi með parketi á gólfi of fataskáp. Gluggi veitir gott dagsljós, ásamt svalahurð út á pall.
Svefnherbergi IVFjórða herbergið/geymsla er inn af anddyri. Það er rúmgott parketi á gólfi og fataskáp.
BaðherbergiGlæsilegt og flísalagt baðherbergi með viðarlitaðri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með glerskilrúmi. LED-lýsing í lofti og vandaður frágangur skapa nútímalegt og fallegt heildarútlit.
Saunu- og sturturýmiYfirbyggt og mjög skemmtilega útfært útisvæði með heitum potti. Inngengt er af útisvæði bint inn á baðherbergi sem er með inngegni í saunu. Díóðulýsing í lofti skapar sérstaka stemningu og rýmið tengist vel veröndinni.
BílskúrSambyggður bílskúr með stórri bílskúrshurð og þvottaaðstöðu. Innangengt inn í íbúðarhluta hússins í gegnum forstofu.
Um húsið:- Rúmgóð lóð með frágengnum útisvæðum, góðri aðkomu og skjólgóðri verönd í tengslum við húsið.
- Timburverönd liggur meðfram þremur hliðum hússins og er rúmlega 120 m² að stærð. Hún myndar stóran og notalegan útivistarmiðpunkt með góðri tengingu frá eldhúsi og alrými.
- Búið er að koma fyrir 10 fm kofa á lóðinn sem er ekki inn í fermetratölu húsins. Það er bjálkahús úr 34mm bjálkum með tvöfaldri nót. Geymsluskúrinn er málaður í sama lit og íbúðarhúsið og er með einangruðum botni.
- Heitur pottur er undir yfirbyggðu svæði ásamt sturtuaðstöðu og saunaklefa. Þetta er vandað og hlýlegt útisvæði sem nýtist vel allt árið.
- Lóðin er um 840 m², að mestu leyti frágengin og afgirt. Innkeyrsla er malarborin með nægu bílastæðaplássi og húsið stendur innst í botnlanga.
- Eignin er í nýju og eftirsóttu íbúðarhverfi í fjölskylduvænu umhverfi á Selfossi. Stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttastarf, sundlaug og miðbæ með þjónustu og verslunum.
- Húsið er klætt með svartri, láréttri timburklæðningu sem gefur því skýrt og nútímalegt yfirbragð. Stórir gluggar og tenging við verönd undirstrika opið og bjart yfirbragð eignarinnar.
- Falleg bygging og vel hirt eign með efnisvali sem styður við gott viðhald og þægindi í daglegri notkun.
- Á veggjum eru harðgipsplötur og í loftum hvítar loftaþiljur. Innfelld lýsing er ríkuleg og skapar góða lýsingu og hlýlegt yfirbragð í rýmunum.
- Gólf eru með gegnheilu viðarparketi í flestum rýmum en anddyri og votrými eru flísalögð. Gólflögnin fellur vel að nútímalegri og hlýlegri innanhúshönnun.
- Gluggar eru viðhaldslitlir úr PVC og í húsinu eru stillanlegar lofttúður sem stuðla að betri loftgæðum. Þetta er hagnýt lausn sem styður við dagleg þægindi.
- Í húsinu eru um það bil 60 innfelld ljós með dimmum og næturlýsing með skynjara á gangi. Slík lýsing eykur bæði notagildi og stemningu heimilisins.
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða magnus@eignaland.isKem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu
Get bætt við eignum á skrá – endilega hafið samband