Völusteinsstræti 12, 415 Bolungarvík
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
10 herb.
317 m2
Tilboð
Stofur
3
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
143.750.000
Fasteignamat
64.900.000

***Völusteinsstræti 12, 415 Bolungarvík***

Eignaland og Jens Magnús lgf kynna í einkasölu Völusteinsstræti 12 í Bolungarvík. Virkilega fallegt einbýlishús á fallegum stað með gríðarlega fallegu útsýni til allra átta. Um er að ræða 317,3 fm einbýli á tveimur hæðum með sex svefnherbergjum og þremur stofum. Eign sem bíður upp á mikla möguleika, eins og til dæmis að útbúa íbúð á neðri hæð. Vel gróin lóð, snyrtileg og vel hirt með glæsilegu umhverfi. Mjög falleg aðkoma er að húsinum með steyptri innkeyrslu og hlöðnum veggjum að götu.

Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi fasteignasala í síma 8931984 eða [email protected]

Nánari lýsing:
Efri hæð:

Gengið er upp fallegar tröppur með ryðfríu handriði og komið inn í forstofu með miklu skápaplássi, flísum og hita í gólfi. Eldhúsið er með borðkrók, fallegri innréttingu og með kork á gólfi. Úr eldhúsi er innangengt í þvotthús með geymslu þar innaf, útgengt er úr þvottahúsi út á stórar svalir í suður. Borðstofa er rúmgóð með útgang á svalir og gengið er upp tvö þrep inn í stóra og rúmgóða stofu með útgangi á svalir. Svefnherbergisgangurinn er með tveimur svefnherbergjum (stærra herbergið er sameinað úr tveimur) og baðherbergi með sturtuklefa, baðkari og flísum ásamt hita í gólfi. Parket er á flestum gólfum nema votrýmum og eldhúsi.

Neðri hæð:
Komið er inn í forstofu með hita í gólfiog gegnið inn í bílskúr á vinstri hönd og inn í geymslu á hægri hönd. Neðri hæðin er með fjögur svefnherbergjum og sjónvarpsherbergi. Þessi hluti eignarinnar býður upp á mikla möguleika. Lítið salerni er á neðri hæðinni. Parket er á flestum gólfum nema á votrýmum eru flísar. Útigeymsla er undir svölum.

-Byggt var við húsið um 1980, í þá stærð sem það er núna.
-Töluvert er búið að endurnýja eignina á undanförnum árum. 
-Alla tíð hefur verið staðið vel að viðhaldi hússins.
-Núverandi eigendur hússins hafa átt það alla tíð.
-Þrefalt gler er í all flestum gluggum (örfáir litlir gluggar á neðri hæð sem ekki er búið að endurnýja)

Verulega falleg eign sem vert er að skoða, eitt glæsilegasta húsið í bæjarfélaginu.

Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson í síma 893-1984 eða [email protected]


***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.