Suðurbraut 18, 801 Selfoss
85.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
0 herb.
251 m2
85.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
72.900.000
Fasteignamat
48.550.000

Eignaland kynnir í einkasölu.
Um er að ræða  251,3 fm geymsluhúsnæði í Tjarnarbyggð rétt utan við Selfoss.
Nánar tiltekið 4km frá Selfossi, í suðurátt að Eyrarbakka/Stokkseyri.
Húsið stendur á c.a 1.2ha eignalóð með töluverðum byggingarétti (sjá lýsingu hér að neðan um lóðir í Tjarnarbyggð)
Húsið er stálgrindarhús á einni hæð með allt að 6.m lofthæð í hæsta punkti.Innkeyrsluhurð er 4.metrar. 
Búið er að teikna ca. 100 fm einbýlishús á lóðina en þær teikningar fylgja með ef nýr eigandi vill nýta sér. (sjá teikningu í myndum)

Upplýsingar um lóðir og byggingaheimildir  í Tjarnarbyggð:
Lóðirnar eru á 600ha landsvæði, þær eru 6 saman í klasa, milli klasa liggja breiðar göngu- og reiðleiðir til afnota fyrir lóðareigendur.
Stærð lóða eru frá 1ha til 3,3 ha.  Það má byggja íbúðarhús og útihús á lóðunum sem eru allt að 1500fm stærð og víðtækar heimildir eru til húsdýrahalds, ræktunar og léttrar atvinnustarfsemi. Heimili, skemma, gróðurhús og hesthús á einum stað.
Heimilt er að byggja íbúðarhúsnæði allt að 1000 fm að brúttófleti auk þeirra úthúsa sem fylgja starfsemi sem fram fer á lóðinni, en skulu úthús og íbúðarhús þó aldrei vera stærri en 1500 fm samtals að brúttófleti. Árborg og viðkomandi veitur munu sjá um allan rekstur svæðisins t.d. snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur og tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn, lýsingu og fjarskipti.
Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar. 

Ljósleiðari er í Tjarnabyggð. Stutt er í alla þá fínu þjónustu sem er í boði á Selfossi s.s. alla almenna verslun, skóla og læknisþjónustu.
Reiðvegur mun umlykja allt Tjarnabyggðasvæðið. Auk þess verða reiðleiðir meðframa aðallvegi auk tveggja reiðleiða þvert yfir svæðið.

Allar nánari upplýsingar veita:
Sigurður Fannar lögg. fasteignasali í síma 897-5930 eða [email protected]

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.