Seljaland 4, 800 Selfoss
74.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
120 m2
74.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
58.290.000
Fasteignamat
70.250.000

***Seljaland 4, 800 Selfoss***
 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í sölu Seljaland 4, 800 Selfoss. Fjögurra herbergja raðhús í þessu vinsæla hverfi á Selfossi. Eignin er skráð skv. HMS 120,6 fm og þar af er bílskúr 28,6 fm. Virkilega snyrtilegt raðhús og fallega innréttað.


Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða [email protected]
 
Nánari lýsing:

Komið er inn í opna forstofu með góðum skáp. Innaf forstofu er inngangur í tvö svefnherbergi með skápum. Þaðan er komið inn í alrými með eldhúsi með fallegri innréttingu, borðstofu og stofu. Hjónaherbergið er rúmgott með miklu skápaplássi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, upphengdu salerni og snyrtilegri innréttingu. Þvottahús er með innréttingu með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr.
Bílskúrinn er rúmgóður með góðri geymslu innaf sem er parketlögð (væri hægt að nota sem 4 svefnherbergið). Bílskúrshurð með gönguhurð.
 
- Parket er á öllum gólfum nema votrímum þar eru flísar.
- Innfeld lýsing er í húsinu.
- Pallur er á baklóð sem snýr í suður.
- Mulningur er í innkeyrslu.
- Virkilega falleg eign á góðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
 
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða [email protected]

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***
 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.