Lundur 48, 200 Kópavogur
229.500.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
6 herb.
222 m2
229.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2015
Brunabótamat
132.540.000
Fasteignamat
156.900.000

***Lundur 48, 200 Kópavogur***
 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Lund 48, 200 Kópavogur. Glæsilegt parhús á þessum vinsæla og friðsæla stað.  Eignin er sex herbergja, á tveimur hæðum og skv. skráningu 222,4 fm og þar af bílskúr 25,9 fm. Út frá efri hæð er gengið út á 34,1fm þaksvalir. Rut Kára sá um hönnun að innan sem er einkar falleg. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar ásamt innihurðum sem eru extra háar. 
 
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða [email protected]
Aðeins er hægt að skoða eignina í einkaskoðun, ekki verður haldið opið hús.
 
Nánari lýsing:
Efri hæð:

Komið er upp stigann í fallegt alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Eldhúsinnréttingin er stór með eyju og úr eldhús er útgengt út á þaksvalir með brustor markísa með framgardínu og ledlýsingu. Í alrýminu er fallegur arin sem hannaður var af Rut Kára og Jóni Eldon. Í lofti stofunnar er hljóðdempandi loftklæðning, hönnuð af Rut Kára, einnig er loftið hraunað til að auka hljóðdempun. Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, annað þeirra er hjónaherbergi með góðu fatarými og útgengi á svalir. Baðherbergið er einkar glæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með rúmgóðri innréttingu, salerni, góðum sturtuklefa og baðkari. Stiginn upp er með fallegu gler handriði, gert er úr einföldu 19mm hertu gleri.

Neðri hæð:
Komið er inn í eignina um sér inngang á neðri hæð. Komið er inn í rúmgóða forstofu með góða skápaplássi. Þaðan er gengið inn gang með tveimur svefnherbergjum með fataskápum, sjónvarps stofu með sérsmíðaðri hurð hannaðri af Rut Kára, baðherbergi sem er glæsilegt flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu salerni og rúmgóðri sturtu. Útgengt er á stóran pall, þar sem búið er að koma fyrir heitum potti með led lýsingu, sauna úr kanadískum sedrus við með led lýsingu, hátölurum og brustor markísa með framgardínu og ledlýsingu. Innangengt er í bílskúr af neðri hæð.

- Flísar eru á öllum gólfum.
- Blöndunartæki á baðherbergjum eru innbyggð.
- Niðurtekin loft í eldhúsi og baðherbergjum með kappalýsingu eftir hönnun Rut Kára.
- Snjallkerfi er í húsinu þar sem hægt er að stjórna hátalarakerfi og aðgengi.
- Eftirlitskerfi ásamt þjófavarnarkerfi með myndavélum og skynjurum fylgir.
- Öll hönnun og skipulag hússins eru eins og best verður á kosið og er virkilega falleg.
- Búið er að gera handbók um húsið sem lýsir öllum eiginleikum þess og hverjir komu að hönnun þess. Einnig er að finna í handbókinni allt um hvaðan allt er og hvaða litanúmer eru á veggjum og lofti að innan og utan.


Þetta er einstakt tækifæri á að eignast virkilega fallega eign á þessum vinsæla stað.
 
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða [email protected]

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.