Lækjarbraut 14, 851 Hella
94.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
205 m2
94.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1974
Brunabótamat
91.250.000
Fasteignamat
56.750.000

***Lækjarbraut 14, 851 Hella***
 
Eignaland og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Lækjarbraut 14, 851 Hella. Fallegt fimm herbergja einbýlishús á þessum vinsæla stað í Rauðarlækjarhverfinu á Suðurlandi. Skv. skráningu er eignin 205,2 fm og þar af er bílskúr 66,8 fm. Töluvert mikið búið að endurnýja húsið á undanförnum árum. Mjög stór lóð er við húsið og Rauðalækur rennur rétt við eignina. Fallegur pallur er við húsið með heitum potti og útisturtu.
 
Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða [email protected]
 
Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Eldhús er með rúmgóðri hvítri innréttingu og miklu borðplássi.
Borðstofa og stofa eru í stóru og björtu sameiginlegu rími. Útgengi er á pallinn í suður með frábæru útsýni úr borstofu.
Herbergin eru fjögur með góðum skápum. Eitt herbergið er inn af forstofu.
Baðherbergi er fallegt og nýlega endurnýjað með innréttingu, sturtuklefa og upphengdu salerni.
  • Parket er á flestum gólfum nema forstofu, baðherbergi og þvottahúsi þar eru flísar.
  • Bílskúrinn er mjög stór með innkeyrslu hurð og gönguhurð á hlið.
  • Búið er að endurnýja bílskúrshurðina.
 
Virkilega falleg eign á frábærum stað. Sjón er sögu ríkari.
 
Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasla:
Jens Magnús Jakobsson, sími 893-1984 eða [email protected]

 
***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.